Vinnuverndarvikan 2016
Vinnuvernd er allra hagur, - fyrir þig og þinn vinnustað
Vinnuvernd alla ævi
Vinnuverndarvika Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar árið 2016 fjallar um vinnuvernd alla ævi.
Vinnuverndarvikan er dagana 17. til 21. október.
Vinnuaðstæður snemma á lífsleiðinni hafa áhrif á heilbrigði fólks á efri árum. Forvarnir vegna vinnuslysa, heilsufarsvandamála og starfstengdra sjúkdóma eru nauðsynlegar alla starfsævina. Mikilvægt er að nálgast vinnuvernd á heildrænan hátt t.d. út frá starfsumhverfi og tilhögun, þjálfun og nám alla ævi, forystu, jafnvægi milli einkalífs og vinnu, hvatningu og starfsframa
Helstu markmið:
- Að efla sjálfbæra vinnu og heilbrigða öldrun frá upphafi starfsævi
- Að undirstrika mikilvægi forvarna út alla starfsævina
- Að veita bæði atvinnurekendum og launþegum (þ.m.t. smáum og meðalstórum fyrirtækjum) upplýsingar og hagnýtan búnað til að stjórna vinnuvernd þegar kemur að heilbrigðri öldrun vinnuaflsins
- Að auðvelda miðlun á upplýsingum og góðum starfsvenjum
Ráðstefnur
- 20. október á Hilton Reykjavík Nordica
- 28. nóvember á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum