Upptaka frá ráðstefnu um hamingju á vinnustöðum
Vinnueftirlitið ásamt Embætti landlæknis og VIRK stóð fyrir morgunfundi á Grand Hótel þann 21. febrúar 2019 um mikilvægi þess að auka vellíðan á vinnustöðum.
Aðalfyrirlesari á morgunfundinum var Vanessa King, þekktur fyrirlesari og sérfræðingur um vellíðan, þrautseigju og hamingju á vinnustöðum, en Vanessa er hér á landi að kenna í Jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands.
Auk Vanessu þá ávarpaði Alma D. Möller landlæknir morgunfundinn, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir reifaði rannsóknir sínar á hamingju vinnandi fólks á Íslandi og Ingibjörg Loftsdóttir kynnti Velvirk verkefnið.
Hægt er að sjá upptöku frá ráðstefnunni hér að neðan.