Hönnun og vinnuvernd
Um hvað er námskeiðið?
Á námskeiðinu verður fjallað um mikilvægi þess að huga að vinnuvernd stax á hönnunarstigi. Komið verður inn á vinnuvernd við hönnun á byggingum, vélum, verkfærum og fleiru. Lögð er áhersla á samvinnu og tengsl vinnuverndarstarfs, öryggisnefnda og hönnuða. Kynntar verða rannsóknir á slysum sem tengjast hönnun.
Fyrir hverja?
Hönnuði, arkitekta, verkfræðinga, tæknifræðinga og alla sem hafa áhuga á bættu vinnuumhverfi.
Ávinningur
Þáttakendur fá betri innsýn og þekkingu á tengslum vinnuverndar og hönnunar.
Hvernig?
Hvert námskeið er 3,5 klukkustundir og byggist upp á fyrirlestri, dæmum, myndum og umræðum.
Skráning
Skráning er á vefslóðinni http://skraning.ver.is.