Öryggisskýrslur á heimasíðu Vinnueftirlitsins
Öryggisskýrslur fyrirtækja með mikið magn af hættulegum efnum eru birtar hér á heimasíðu Vinnueftirlitsins (sjá tengil á starfsstöðvar hér til hægri á síðunni). Í öryggisskýrslunum er að finna upplýsingar fyrir almenning um starfsstöðvar fyrirtækjanna og kemur fram hvaða hættuleg efni eru í starfsstöðvunum auk ýmissa upplýsinga sem tengjast þeim hættum sem starfseminni fylgja. Starfsstöðvarnar eru með öryggisstjórnkerfi og fylgjast stöðugt og kerfisbundið með þeim hættulegu efnum sem eru í stöðinni og meðferð þeirra. Starfsstöðvarnar og almannavarnir á staðnum gera einnig neyðaráætlanir fyrir svæðin í kring um starfsstöðvarnar og fyrirtækin halda kynningar og dreifa kynningarefni þar sem m.a. kemur fram hver þurfa að vera viðbrögð nágrannanna ef stórslys yrði vegna hættulegu efnanna í starfsstöðinni.
Prentvæn útgáfa

