Vinnuvélanámskeið
Upplýsingar um Frumnámskeið og Byggingakrananámskeið
Frumnámskeið er námskeið fyrir minni vinnuvélar
Námskeiðið veitir bókleg réttindi fyrir: Lyftara með 10 tonna lyftigetu og minni, dráttarvélar með tækjabúnaði og minni gerðir jarðvinnuvéla (4t og undir), körfukrana, steypudælur, valtara, útlagningarvélar fyrir bundið slitlag og hleðslukrana á ökutækjum með allt að 18 tm lyftigetu.
Námskeiðin í Reykjavík eru haldin í húsnæði Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27. 110 Reykjavík, jarðhæð. Bílastæði og inngangur er neðan við húsið, norðanmegin (Grafarvogsmegin).
Ath. námskeiðið er EKKI haldið í húsnæði Vinnueftirlitsins að Bíldshöfða 16.
Námskeiðið er haldið á íslensku og prófið er á íslensku. Þeir sem ekki skilja mjög vel íslensku geta ekki setið námskeiðið.
Ath. námskeiðið er EKKI haldið í húsnæði Vinnueftirlitsins að Bíldshöfða 16.
Námskeiðið er haldið á íslensku og prófið er á íslensku. Þeir sem ekki skilja mjög vel íslensku geta ekki setið námskeiðið.
Ef námskeið eru haldin á öðrum tungumálum en íslensku er þess sérstaklega getið í námskeiðsáætlun hér fyrir neðan.
Námskeiðið er haldið í minnst þremur áföngum (á þremur dögum) og að öllu jöfnu innan reglubundins vinnutíma, þ.e. frá kl. 08:30 til 16:00. Yfirleitt er gert ráð fyrir eins dags hléi á milli annars dags námskeiðsins og þess þriðja. Fyrsti dagur á frumnámskeiði kallast fornám og fjallar um vinnuverndarmál, eðlisfræði, vökvafræði, vélfræði, rafgeyma og öryggi við skurðgröft. Dagar 2 og 3 fjalla um einstaka flokka vinnuvéla og fleira þeim tengt. Frumnámskeiði lýkur með skriflegu krossaprófi.
Krafist er 100% tímasóknar til að ljúka námskeiðinu.

Innritun er í síma 550 4600, skiptiborð Vinnueftirlitsins.
Áætluð Frumnámskeið ársins 2013 í Reykjavík eru eftirfarandi:
8., 9. og 11. janúar
18., 19. og 20. febrúar (Ath. námskeiðið er á pólsku)
26. og 27. febrúar og 1. mars
12., 13. og 15. mars
9., 10. og 12. apríl
14., 15. og 17. maí
27., 28. og 30. maí
28., 29. og 31. maí
11., 12. og 14. júní
27., 28. og 30. ágúst
Einnig verða eftirtalin námskeið haldin í Reykjavík fyrir D-kranaréttindi og byggingakranaréttindi:
8., 9. og 10. janúar
28., 29. og 30. maí
Frumnámskeið utan Reykjavíkur:
Keflavík, 22., 23. og 24. maí
Hægt er að halda sérstök námskeið fyrir tiltekin fyrirtæki eftir nánari óskum.
Upplýsingar og skráning á námskeið sem haldin eru í öðrum umdæmum Vinnueftirlitsins fást á skrifstofu þess í viðkomandi umdæmi. Sjá símanúmer á heimasíðu.
Verkleg þjálfun
Standist nemendur próf að loknu frumnámskeiði geta þeir hafið verklega þjálfun hjá atvinnurekanda í stjórn og meðferð vinnuvéla. Verkþjálfun skal fara fram undir leiðsögn leiðbeinanda sem hefur réttindi til kennslu og þar sem ekki er margt fólk eða slysahætta.
Verklegt próf og vinnuvélaskírteini
Þegar nemandi er kominn með staðfestingu á að lokið sé verklegri þjálfun óskar hann eftir prófdómara frá Vinnueftirlitinu og fer í verklegt próf. Standist nemandi prófið fær hann staðfestingu á því hjá prófdómara sem hann framvísar hjá Vinnueftirlitinu um leið og hann sækir um vinnuvélaskírteini fyrir viðkomandi vél/vélar. Greiða þarf fyrir verklegt próf og skírteini við próftöku eða áður en prófið er tekið.
Til að fá réttindi til að stjórna krana þarf viðkomandi að framvísa læknisvottorði sem samsvarar vottorði til að fá aukin ökuréttindi.
Hvað þarf maður að vera orðinn gamall til að fá vinnuvélaréttindi?
Það er 16 ára aldurstakmark til að geta setið frumnámskeið en þremur mánuðum fyrir 17 ára afmælisdaginn getur viðkomandi farið að æfa sig á tæki undir leiðsögn einstaklings með kennararéttindi á vélina.
Til að fá vinnuvélaréttindi verður viðkomandi að vera orðinn 17 ára og hafa bílpróf.
Byggingakrananámskeið
Námskeiðið veitir bókleg réttindi fyrir byggingakrana (AB) og hafnarkrana >18 tm (AH)
Byggingakrananámskeið eru haldin í samræmi við eftirspurn, innritun á biðlista er í síma 550 4600, skiptiborð Vinnueftirlitsins.
Námskeiðin í Reykjavík eru haldin í húsnæði Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27. 110 Reykjavík, jarðhæð. Bílastæði og inngangur er neðan við húsið, norðanmegin (Grafarvogsmegin).
Ath. námskeiðið er EKKI haldið í húsnæði Vinnueftirlitsins að Bíldshöfða 16.
Námskeiðið er haldið á íslensku og prófið er á íslensku. Þeir sem ekki skilja mjög vel íslensku geta ekki setið námskeiðið.
Öðru hverju eru haldin námskeið á ensku, pólsku, kínversku og á fleiri tungumálum.
Námskeiðið er haldið í minnst þremur áföngum og að öllu jöfnu innan reglubundins vinnutíma. Yfirleitt er gert ráð fyrir eins dags hléi á milli annars dags námskeiðsins og þess þriðja. Fyrsti dagur á byggingakrananámskeiði kallast fornám og fjallar um vinnuverndarmál, eðlisfræði, vökvafræði, vélfræði, rafgeyma og öryggi við skurðgröft. Dagar 2 og 3 fjalla um byggingakrana og fleira þeim tengt. Námskeiðinu líkur með skriflegu krossaprófi.
Krafist er 100% tímasóknar til að ljúka námskeiðinu.
Hægt er að halda sérstök námskeið fyrir tiltekin fyrirtæki eftir nánari óskum.
Upplýsingar og skráning á námskeið sem haldin eru í öðrum umdæmum Vinnueftirlitsins fást á skrifstofu þess í viðkomandi umdæmi. Sjá símanúmer á heimasíðu.
Verkleg þjálfun
Standist nemendur próf að loknu byggingakrananámskeiði geta þeir hafið verklega þjálfun hjá atvinnurekanda í stjórn og meðferð byggingakrana. Verkþjálfun skal fara fram undir leiðsögn leiðbeinanda sem hefur réttindi til kennslu á byggingakrana og þar sem ekki er margt fólk eða slysahætta.
Verklegt próf og vinnuvélaskírteini
Þegar nemandi er kominn með staðfestingu á að lokið verklegri þjálfun óskar hann eftir prófdómara frá Vinnueftirlitinu og fer í verklegt próf. Standist nemandi prófið fær hann staðfestingu á því hjá prófdómara sem hann framvísar hjá Vinnueftirlitinu um leið og hann sækir um vinnuvélaskírteini fyrir byggingakrana. Greiða þarf fyrir verklegt próf og skírteini við próftöku eða áður en próf er tekið.
Til að fá réttindi til að stjórna krana þarf viðkomandi að framvísa læknisvottorði sem samsvarar vottorði til að fá aukin ökuréttindi.
Hvað þarf maður að vera orðinn gamall til að fá byggingakranarétttindi?
Það er 16 ára aldurstakmark til að geta setið byggingakrananámskeið en þremur mánuðum fyrir 17 ára afmælisdaginn getur viðkomandi farið að æfa sig á byggingakrana undir leiðsögn einstaklings með kennararéttindi á kranann.
Til að fá kranaréttindi verður viðkomandi að vera orðinn 17 ára og hafa bílpróf.
Prentvæn útgáfa