Fræðsluerindi og fyrirlestrar úti á vinnustöðum
Fræðsludeild Vinnueftirlitsins býður upp á fræðslu úti á vinnustöðum fyrir starfsmenn og stjórnendur. Fræðsluerindin geta verið um ýmsa þætti vinnuverndar svo sem um líkamsbeitingu við vinnu, einelti á vinnustað, samskipti á vinnustað, gerð áhættumats starfa, efnanotkun, hávaða, móttöku nýliða, skjávinnu o.fl. allt eftir óskum frá hverjum og einum.
Upplagt að halda fræðslufund fyrir starfsmenn t.d. í hádeginu eða að starfsdegi loknum.
Fræðsluerindið kostar kr. 26.875-
Þeir sem áhuga hafa sendi beiðni á gudmundur@ver.is eða hafið samband í gegnum skiptiborð vinnueftirlitsins sími: 550 4600.
Prentvæn útgáfa

