Stækka leturMinnka leturFeitletrað leturVenjulegt leturHvítur bakgrunnurBlár bakgrunnurRauður bakgrunnurGrænn bakgrunnurSvartur bakgrunnur
English

Helstu fyrirspurnir varðandi námskeið um stjórnun vinnuvéla og vinnuvélaréttindi

Hvað er frumnámskeiðið langt, hvernig á að skrá sig og hvað kostar námskeiðið?

Námskeiðið tekur, að öllu jöfnu, 3 daga (29 kennslustundir með prófum) (sjá verðskrá og stundaskrá). Kennt er virka daga frá kl. 8:30 - 17:30.

Innritun er í síma 550 4600 hjá Vinnuvéladeild eða á skiptiborði, einnig er hægt að innrita með tölvupósti: hildur@ver.is.

Upplýsingar og skráning á námskeið sem haldin eru í öðrum umdæmum Vinnueftirlitsins fer fram á viðkomandi umdæmisskrifstofu.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. ATH !!!! Krafist er 80% tímasóknar til að ljúka námskeiðinu.

Að bóklegu námskeiði loknu öðlast nemendur rétt til að fara í verklega þjálfun hjá atvinnurekanda í stjórn og meðferð vinnuvéla í eftirtöldum flokkum:

  1. Lyfturum með lyftigetu 10 tonn og minni
  2. Dráttarvélum með tækjabúnaði og minni gerðum vinnuvéla
  3. Körfukrönum
  4. Steypudælum
  5. Völturum
  6. Útlagningarvélum fyrir bundið slitlag
  7. Hleðslukrönum á ökutækjum með allt að 18 tm lyftigetu


Þegar nemandi er kominn með staðfestingu um að verklegri þjálfun sé lokið á vinnuvél/vinnuvélar í einhverjum fyrrgreindra flokka óskar hann eftir að prófdómari frá Vinnueftirlitinu mæti á vinnustaðinn og að verklegt próf fari þar fram. Þegar óskað er eftir verklegu prófi skal gefa upp nafn og kennitölu próftaka, símanúmer og einnig skal tilgreina hvar prófið á að fara fram og hvenær. Prófdómari staðfestir, að prófi loknu, hvort sá sem tók prófið hafi staðist það. Þessarri staðfestingu skal síðan framvísað til hjá Vinnueftirlitisins og um leið skal sótt um vinnuvélaskírteini fyrir viðkomandi vél/vélar. Greiða skal gjald fyrir verklegt próf og skírteini um leið og umsókn er lögð inn hjá Vinnueftirlitinu.

Missir einstaklingur vinnuvélaréttindin ef hann eða hún hefur verið sviptur ökuréttindum?

Það er álit Vinnueftirlitsins að svipting ökuréttinda leiði ekki sjálkrafa af sér sviptingu vinnuvélaréttinda. Vinna á tækinu er því heimil þrátt fyrir sviptingu ökuréttinda en akstur sem fellur undir umferðarlög er óheimill.

Hvað þarf maður að vera orðinn gamall til að fá vinnuvélaréttindi?

Það er 16 ára aldurstakmark til að geta setið frumnámskeið en þremur mánuðum fyrir 17 ára afmælisdaginn getur viðkomandi farið að æfa sig á tæki undir leiðsögn einstaklings með kennararéttindi á vélina.




Prentvæn útgáfa