Námskrá vinnuverndarnámskeiðs fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði
Á námskeiðinu er farið yfir alla helstu málaflokka sem varða vinnuumhverfi starfsmanna s.s. hávaða, lýsingu, inniloft og loftræstingu innanhúss, líkamlega áhættuþætti, félagslega og andlega áhættuþætti heilsuvernd á vinnustað, vinnuslys og slysavarnir og notkun persónuhlífa. Vinnuverndarlögin (46/1980) eru kynnt sem og reglur sem settar eru í samræmi við þau.
Auk þess er fjallað um hvernig haga skuli gerð áhættumats en árið 2003 voru sett inn í vinnuverndarlögin (46/1980) ákvæði um að atvinnurekandi beri ábyrgð á að gert sé sérstakt skriflegt áhættumat þar sem áhætta í starfi, með tilliti til öryggis og heilsu starfsmanna, er metin. Einnig gefst þátttakendum kostur á að kynna sér fræðsluefni sem Vinnueftirlitið hefur gefið út en það nýtist vel í störfum öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða.
Ávinningur af námskeiðinu er stóraukin þekking á vinnuverndarmálum og tækifæri til að bæta hjá sér vinnuumhverfið, fækka slysum og veikindadögum og stuðla almennt að betri líðan starfsmanna.
Vinnueftirlitið heldur reglulega námskeið um vinnuvernd fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði og aðra þá sem hafa áhuga á vinnuverndarmálum og vilja bæta hjá sér vinnuumhverfið. Námskeiðið er á kostnað atvinnurekanda, sbr. 8. og 9. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Verð námskeiðs (sjá verðskrá)
Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði haldin á landsbyggðinni 2012
- 25. - 26. janúar - Reyðarfjörður
- 7. - 8. mars - Keflavík
- 27. - 28. mars - Akureyri
- 26. - 27. apríl - Selfoss
- 23. - 24. október - Sauðárkrókur
- 19. - 20. nóvember - Akureyri
- 22. - 23. nóvember - Húsavík
Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði haldin í Reykjavík 2012
- 18. - 19. janúar
- 15. - 16. febrúar
- 14. - 15. mars
- 11. - 12. apríl
- 9. - 10. maí
- 6. - 7. júní
- 12. - 13. september
- 17. - 18. október
- 14. - 15. nóvember
- 12. - 13. desember
Tími: kl. 9 - 16, og alltaf 2 dagar í röð
Námskeiðin í Reykjavík eru haldin í húsnæði Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27. 110 Reykjavík, jarðhæð. Bílastæði og inngangur er neðan við húsið, norðanmegin (Grafarvogsmegin).
Ath. námskeiðið er EKKI haldið í húsnæði Vinnueftirlitsins að Bíldshöfða 16.
Námskeiðin standa yfir frá 9:00 – 16:00 (hádegishlé milli 12:00 og 13:00). Námskeiðsgjald (sjá verðskrá) greiðist af atvinnurekanda. Staðsetning námskeiða utan Reykjavíkur er auglýst ofar á síðunni.
SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ er á heimasíðunni, gerð af þátttakendum sjálfum eða senda póst á eftirfarandi netföng:
Umdæmi (umdæmisskrifstofa) Sími Netfang
Reykjavík (aðalskrifstofa) 550 4600 vala@ver.is
Vesturland (Akranes) 431 2670 vesturland@ver.is
Vestfirðir (Ísafjörður) 450 3080 vestfirðir@ver.is
Norðurland-vestra (Sauðárkr.) 455 6015 n-vestra@ver.is
Norðurland-eystra (Akureyri) 460 6800 n-eystra@ver.is
Austurland (Egilsstaðir) 471 1636 austurland@ver.is
Suðurland (Hveragerði) 483 4660 sudurland@ver.is
Reykjanes (Reykjanesbær) 420 2040 margret@ver.is

