Leiðbeiningar um vinnutengdar heilbrigðisskoðanir, skráningu og tilkynningar slysa, atvinnusjúkdóma og atvinnutengdra sjúkdóma
Leiðbeiningarnar eru einkum ætlaðar þeim sem annast heilbrigðisskoðanir starfsmanna, skráningu og tilkynningar slysa, atvinnusjúkdóma og atvinnutengdra sjúkdóma. Tekin eru upp helstu atriði í reglum og reglugerðum sem varða þessi atriði og settar hafa verið skv. lögum um vinnuvernd nr. 46/1980 (hér eftir nefnd vinnuverndarlögin). Þegar vitnað er í reglur og reglugerðir er yfirleitt um beinar tilvitnanir að ræða (án tilvitnunarmerkja) en þau atriði einkum tilfærð sem varða heilbrigðisskoðanir beint. Stundum er vitnað til greina eða viðauka annars staðar í reglunum eða reglugerðunum og er þá nauðsynlegt fyrir notendur að fletta þeim upp en allar reglur og reglugerðir sem falla undir vinnuverndarlögin má finna undir fyrirsögninni Lög og reglur á http://www.vinnueftirlit.is. Oft er vitnað til ákvæða um áhættumat. Til að forðast óþarfa endurtekningar verður framvegis í leiðbeiningum þessum yfirleitt talað um reglugerðir og er þá átt við hvort heldur reglur eða reglugerðir. Hér fyrir neðan er farið yfir þessi atriði í nokkrum köflum
Efnisyfirlit
Almennt um heilsufarsskoðanir
Hverjir sinna heilsufarseftirliti?
Sérstök ákvæði um heilsufarsskoðanir
Reglugerð 540/2011 um tilkynningu og skráningu atvinnusjúkdóma
Reglugerð 430/2007 um bann við notkun asbests á vinnustöðum
Reglugerð um varnir gegn skaðlegum áhrifum titrings á heilbrigði og öryggi starfsmanna 922/2006
Reglugerð 553/2004 um verndun starfsmanna gegn hættu á heilsutjóni af völdum efna á vinnustöðum
Reglur nr. 98/2002 um verndun starfsmanna gegn hættu á heilsutjóni af völdum efna sem geta valdið krabbameini eða stökkbreytingu á vinnustöðum
Reglur 764/2001 um verndun starfsmanna gegn hættu á heilsutjóni af völdum líffræðilegra skaðvalda á vinnustöðum
Reglur um skjávinnu 498/1994
Heilsufar sérstakra hópa
Skráning og tilkynning slysa og óhappa
Listi yfir atvinnusjúkdóma sem Vinnueftirlitið óskar eftir að séu tilkynntir
Listinn er byggður á „Commission Recommendation of 19. September 2003“ Evrópulista yfir atvinnusjúkdóma ( C(2003)3297)
Prentvæn útgáfa

