Stækka leturMinnka leturFeitletrað leturVenjulegt leturHvítur bakgrunnurBlár bakgrunnurRauður bakgrunnurGrænn bakgrunnurSvartur bakgrunnur
English
01. febrúar 2010 | 00:00
ADR - endurmenntunarnámskeið fyrir ökumenn sem flytja hættulegan farm

Samkvæmt reglugerð nr. 984/2000 um flutning á hættulegum farmi er gildistími starfsþjálfunarvottorðs ökumanns (ADR-skírteinis) sem annast flutning á hættulegum farmi 5 ár. Heimilt er að framlengja gildistíma vottorðsins um fimm ár í senn hafi handhafi þess á síðustu tólf mánuðum áður en gildistími vottorðsins rrann út og ekki síðar en þrem mánuðum eftir að gildistími vottorðsins rann út lokið endurmenntunarnámskeiði og staðist próf í lok þess.
Haldin verða eftirfarandi endurmenntunarnámskeið á Egilsstöðum (Fellabæ):

Grunnnámskeið    18. febrúar 2010.
Flutningur í tönkum:    19. febrúar 2010.
Flutningur á sprengifimum farmi  20. febrúar 2010.

Til að að endurnýja réttindi fyrir flutninga á hættulegum farmi í tönkum og/eða flutningi á sprengifimum farmi verður viðkomandi að hafa gild réttindi fyrir stykkjavöruflutninga (grunnnámskeið).
Verðið fyrir námskeið fyrir grunnréttindi er 19.310:-kr en 13.310:- kr fyrir hvort hinna námskeiðanna. Skírteinisgjald er kr. 2.700:-. Skrá skal þátttöku og greiða námskeiðs- og skírteinisgjald í síðasta lagi föstudaginn 12. febrúar 2010.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Vinnueftirlitinu á Egilsstöðum, Kaupvangi 6, 700 Egilsstaðir, sími 471 1636.

ATH.: Þetta eru einu ADR-endurmenntunarnámskeiðin sem haldin verða á Egilsstöðum á árinu. ADR-endurmenntunarnámskeið í Reykjavík eru áætluð 22.-24. febrúar, 7.-8. júní (grunn  og tankar), september og október.



Námskeið

Námskeið fyrir
öryggistrúnaðarmenn
og öryggisverði
- Námsefni

Tilkynningar                 

Vinnuverndarvikan 2010 fjallar um örugga viðhaldsvinnu.