Stækka leturMinnka leturFeitletrað leturVenjulegt leturHvítur bakgrunnurBlár bakgrunnurRauður bakgrunnurGrænn bakgrunnurSvartur bakgrunnur
English
11. janúar 2008 | 09:57
Um þjónustuaðila á sviði vinnuverndar

Þjónustuaðili, sem aðstoðar atvinnurekendur við áhættumat og áætlun um forvarnir, skal starfa sem óháður, sérfróður aðili við að greina og meta hættur í vinnuumhverfinu. Hann skal vera atvinnurekendum, fulltrúum þeirra og starfsmönnum til ráðuneytis og ráðgjafar, svo og öryggistrúnaðarmönnum, öryggisvörðum og öðrum, sem málið varðar, við að skapa sem öruggast og heilsusamlegast vinnuumhverfi, samanber greinargerð með reglugerð nr. 1000/2004 og reglugerð nr. 920/2006.

Í reglugerðunum er lögð höfuðáhersla á forvarnir og skyldur atvinnurekanda til að gera áhættumat á vinnustað.

Þegar atvinnurekandi leitar aðstoðar eða úttektar þjónustuaðila vegna fyrirmæla frá Vinnueftirlitinu tengt kvörtunum um einelti skal þjónustuaðilinn vinna í samræmi við fyrrnefndar reglugerðir sem kveða skýrt á um skyldu atvinnurekanda til að gera áhættumat og áætlun um forvarnir. Við áhættumatið skal meta aðstæður í vinnuumhverfinu sem geta leitt til eineltis í nútíð eða framtíð. Atvinnurekanda ber að grípa til viðeigandi aðgerða í samræmi við niðurstöður áhættumatsins til að draga úr eða koma í veg fyrir slíkar aðstæður. Ef áhættumat liggur þegar fyrir gæti þurft að endurskoða það.

Þótt atvinnurekandi leiti sérfræðiþjónustu að eigin frumkvæði til þess að fá úr því skorið hvort um einelti sé að ræða eða ekki leysir það hann ekki undan þeirri skyldu að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar um forvarnir, þ.e. að gert sé áhættumat og að settar séu skýrar reglur um viðbrögð við einelti ásamt viðbragðsáætlun ef slíkt kemur upp.

Breytingar á starfsemi þjónustuaðila
Af gefnu tilefni skal einnig undirstrikað að ef breytingar verða hjá viðurkenndum þjónustuaðila svo sem að fyrirtæki sameinast eða að starfskraftur, sem viðurkenningunni tengdist, fer til annarra starfa, skal það tilkynnt Vinnueftirlitinu.

 


 



Námskeið

Námskeið fyrir
öryggistrúnaðarmenn
og öryggisverði
- Námsefni

Tilkynningar                 

Vinnuverndarvikan 2010 fjallar um örugga viðhaldsvinnu.