Stækka leturMinnka leturFeitletrað leturVenjulegt leturHvítur bakgrunnurBlár bakgrunnurRauður bakgrunnurGrænn bakgrunnurSvartur bakgrunnur
English
16. júlí 2010

Þróun banaslysa við vinnu í landi í 50 ár

Allir vilja komast heilir heim að vinnudegi loknum heilir og sælir. Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlitsins tók saman tölur um þróun banaslysa við vinnu í landi s.l. 50 ár.

Meira...
02. júlí 2010

Endurútgáfa samstarfssamnings Siglingastofnunar og Vinnueftirlitsins

Samstarfssamningur milli Vinnueftirlitsins og Siglingastofnunar Íslands um eftirlit í flotkvíum, dýpkunarprömmum og öðrum prömmum frá 30. apríl 2009 hefur verið endurnýjaður með viðbót við fyrri samning, sbr. II kafla sem varðar gerð öryggisáætlana og gerð skriflegra áætlana um öryggi og heilbrigði á vinnustað og rannsókn vinnuslysa vegna vinnu á bátum styttri en 6 metrar.

Meira...
02. júlí 2010

Vinnuverndarvikan 2010 - Ráðstefna og sýning

Evrópska vinnuverndarvikan 2010, Örugg viðhaldsvinna verður að þessu sinni haldin 25. – 29. október. Í tilefni þess verður haldin ráðstefna og sýning á Grand Hóteli þann 26. október.
Á ráðstefnunni sem fram fer í Gullteig A-sal, verða flutt áhugaverð erindi og efni sem fjalla um öryggi við viðhaldsvinnu. Einnig verða veittar viðurkenningar til fyrirtækja sem talin eru standa sig vel á því sviði sem tengist viðhaldsvinnu.

Meira...
01. júlí 2010

Námskeið: Vinna í hæð - Fallvarnir

Fallslys á jafnsléttu eða af hærri stað eru algengustu vinnuslysin skv. upplýsingum úr Slysaskrá Vinnueftirlitsins. Þegar fólk fellur af hærri stað eins og t.d. vinnupöllum eða stigum verða afleiðingarnar oftar en ekki beinbrot og/eða alvarlegir höfuð- háls- og hryggáverkar sem líklegir eru til að valda langvarandi eða jafnvel ævilöngum heilsubresti og skerðingu lífsgæða og í verstu tilfellunum veldur fallið dauða viðkomandi starfsmanns.
Vinnueftirlitið gerir kröfu um að notaðar séu réttar og fullnægjandi fallvarnir þegar unnið er í hæð og hefur nú hannað námskeið sem fjallar sérstaklega um vinnu í hæð og viðeigandi fallvarnir.

Meira...
08. júní 2010

ADR-réttindi

Haldin verða eftirtalin námskeið í Reykjavík fyrir stjórnendur ökutækja sem öðlast vilja réttindi (ADR-skírteini) til að flytja tiltekinn hættulegan farm á vegum á Íslandi og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu:

Meira...

Námskeið

Námskeið fyrir
öryggistrúnaðarmenn
og öryggisverði
- Námsefni

Tilkynningar                 

Vinnuverndarvikan 2010 fjallar um örugga viðhaldsvinnu.