Stækka leturMinnka leturFeitletrað leturVenjulegt leturHvítur bakgrunnurBlár bakgrunnurRauður bakgrunnurGrænn bakgrunnurSvartur bakgrunnur
English
   
Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði á vinnustöðum

Námskeiðið er á kostnað atvinnurekanda, sbr. 8. og 9. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. 
Verð námskeiðs (sjá verðskrá)

M.a. er fjallað um eftirfarandi:

  • Starf öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða
  • Lög og reglur
  • Hávaða á vinnustað
  • Birtu og lýsingu við vinnu
  • Inniloft og líðan fólks
  • Líkamlega áhættuþætti
  • Félagslega og andlega áhættuþætti
  • Einelti, kynferðislega áreitni, streitu og  kulnun
  • Hættuleg og varasöm efni (efnanotkun)
  • Áhættumat starfa
  • Vinnuslys og atvinnusjúkdóma

Vinnueftirlitið heldur reglulega námskeið um vinnuvernd fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði. 

Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði haldin á landsbyggðinni haustið 2010

  • Hólmavík: 7. - 8. september
  • Ísafjörður: 9. - 10. september
  • Egilsstaðir: 15. - 16. september
  • Selfoss: 28. - 29. september
  • Akureyri: 7. - 8. október
  • Reykjanes: 17. - 18. nóvember

    Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði haldin í Reykjavík haustið 2010

    • 1. - 2. september,
    • 15. - 16. september
    • 29. - 30. september
    • 13. - 14. október
    • 27. - 28. október
    • 10. - 11. nóvember
    • 24. - 25. nóvember
    • 8. -9. desember

    Tími: kl. 9 - 16, og alltaf 2 dagar í röð
    Námskeiðin í Reykjavík eru haldin í húsnæði Ferðamálaskólans, Bíldshöfða 18. 110 Reykjavík, 2h (vinstra megin í húsinu) 

    Þátttakendum er bent á að hafa með sér inniskó þar sem óheimilt er að ganga um kennsluhúsnæðið á útiskóm.

    Námskeiðin standa yfir frá 9:00 – 16:00  (hádegishlé milli 12:00 og 13:00). Námskeiðsgjald er 28.000 krónur sem greiðist af atvinnurekanda. Skráning er í síma 550-4600 eða á netfangið: vala@ver.is

    Á námskeiðinu er farið yfir alla helstu málaflokka sem varða vinnuumhverfi starfsmanna s.s. hávaða, lýsingu, inniloft og loftræstingu innanhúss, líkamlega áhættuþætti, félagslega og andlega áhættuþætti heilsuvernd á vinnustað, vinnuslys og slysavarnir og notkun persónuhlífa. Vinnuverndarlögin (46/1980) eru kynnt sem og reglur sem settar eru í samræmi við þau.

    Auk þess er fjallað um hvernig haga skuli gerð áhættumats en árið 2003 voru sett inn í vinnuverndarlögin (46/1980) ákvæði um að atvinnurekandi beri ábyrgð á að gert sé sérstakt skriflegt áhættumat þar sem áhætta í starfi, með tilliti til öryggis og heilsu starfsmanna, er metin. Einnig gefst þátttakendum kostur á að kynna sér fræðsluefni sem Vinnueftirlitið hefur gefið út en það nýtist vel í störfum öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða.