Frumnámskeið - Námskeið í stjórn og meðferð vinnuvéla.
Frumnámskeið er bóklegt nám sem gefur þátttakendum rétt til að taka verklegt próf á vinnuvél. Eftir verklega þjálfun er tekið verklegt próf á vinnustað.
Í náminu er fjallað um eftirtaldar vinnuvélar:
- Lyftara með allt að 10 tonna lyftigetu
- Ýmsar smávélar, s.s. gröfur og ámokstursskóflur, allt að 4 tonna eiginþyngd
- Dráttarvélar með tækjabúnaði
- Hleðslukrana með allt að 18 tm lyftigetu, körfukrana, steypudælukrana, valtara, útlagningarvélar (malbikunarvélar) og vegfræsara.
Námskeiðið stendur, að öllu jöfnu, í 3 daga (29 kennslustundir). Verð (sjá verðskrá)
Svör við helstu fyrirspurnum um námskeið um vinnuvélaréttindi

